10.12.2009 18:46:10 / fannsig
Hjálagt er listi af
nöfnum sem voru notuð á miðöldum og á fyrstu öldum landnáms en enginn
ber í dag.
Alfarinn, Andríður, Auðúlfur,Ásbera, Ásleif, Ásleifur,
Ávaldi, Bálki,Bárekur, Bjálfi, Bjolllok,Brattur, Bresi, Brigíð,
Brúnmann, Böðólfur, Böggvir, Bölverkur, Dufnall, Fastný, Geirröður,
Geitir, Goti, Grenjaður, Grjótgarður, Gufa, Hallaður, Herröður, Hjálp,
Hjör, Hjörr, Hneitir, Hrifla, Höggvandill, Járnskeggi, Hrani, Kenik,
Kjalvör, Knjúkur, Koltorfa, Kriströður, Kúgaldi, Liður, Maddaður,
Mýrún, Mæfa, Nefsteinn, Niðbjörg, Ormhildur, Ópía, Rafarta, Ráðormur,
Reginleif, Reistar, Skarfur, Skólastika, Skúfur, Snartur, Stórólfur,
Svartkell, Vaði, Vakur, Véfröður, Vilbaldur, Vilgeir, Þjóðar,
Þorbeinir, Þórvé, Ögur, Öndóttur, Alrekur, Ármóður, Dufgús, Finnvarður,
Gríss, Heinrekur, Hrolleifur, Hrosskell, Hyrningur, Hæringur, Jólgeir,
Kaðall, Klaufi, Kleppur, Kolbrandur, Kýlan, Leggur, Ljótólfur,
Oddkatla, Óblauður, Saxi, Sigvör, Skefill, Snærir, Valbrandur,
Ægileif, Böðmóður, Fálki, Geirleifur, Grís, Heimlaug, Hlenni, Hróðgeir,
Hrútur, Ísröður, Leiðólfur, Óleifur, Ósvífur, Rauður, Rjúpa, Snörtur,
Stari, Söxólfur, Þjóðrekur, Þjóstólfur, Þorgestur, Áli, Brúni,
Húnröður, Kleppjárn, Klyppur, Naddur, Skúmur, Sölvör, Valþjófur,
Vébrandur, Þorljótur, Þraslaug,Ölmóður, Lambi, Otkatla, Þórhaddur, Ásbrandur,
Konáll, Tófa, Kjallakur, Kollsveinn, Loðmundur, Refur, Kollur, Órækja,
Sámur Sokki, Surtur, Eindriði, Hróaldur, Svertingur, Bótólfur,
Þorleikur, Beinir, Hafur, Sveinungi, Gamli, Þorgautur, Ásvör, Kolli,
Ásgautur, Svarthöfði, Krákur, Hemingur, Kálfur, Yngvildur, Hallótta,
Svartur, Kolþerna, Alleif, Álaug, Broteva/efa, Etilríður, Eyfríður, Elíná, Fabían, Hegri, Ísleikur, Jóríður, Lífgjarn, Munnveig, Oddkell, Rustikus, Túnis.
»
06.12.2009 22:26:10 / fannsig
Gulli og perlum að safna sér, />
sumir endalaust reyna, />
vita ekki að vináttan er, />
verðmætust eðalsteina. />
/>
Gull á ég ekki að gefa þér />
og gimsteina ekki neina. />
En viltu muna að vináttan er />
verðmætust eðalsteina. />
/>
Höf: Hjálmar Freysteinsson, lækni og hagyrðing á Akureyri. />
/>
»
22.11.2009 23:31:58 / fannsig
Þið sem eigið bíl kannist við það að fara með hann í smurningu/olíuskipti. Það er gaman að segja frá því að kynin framkvæma þessa athöfn ekki eins. Gerður hefur verið útlistun á þessum mun sem ég mun birta hér. Aðeins er um að ræða einfaldan samanburð.
Olíuskipti fyrir konur
1) Keyra á næstu þjónustustöð og láta bílinn í hendur fagmönnum.
2) Fá sér kaffi og kleinu á meðan þú bíður.
3) 15 mínútum seinna færð þú bílinn aftur, smurðann og ert viss um að hann sé vel við gerður.
Kostnaður: Olíuskipti 9500kr kaffi og kleina 390 Samtals 9890
Olíuskipti fyrir karlmenn
1 ) Bíddu eftir næsta laugardegi, skrepptu á varahlutasölu og keyptu olíusíu, olíu, hanska, og sag, og borgaðu 7000 krónur fyrir
2 ) komdu við í ríkinu og keyptu þér 2 kassa af bjór og borgaðu 4500kr fyrir, keyrðu heim og leggðu bílnum í skúrinn.
3 ) Opnaðu bjór og drekktu hann.
4 ) Eyddu hálftíma í að leita að búkkunum
5 ) Finndu búkkana einhverstaðar þar sem krakkinn þinn skildi þá eftir í óleyfi
6 ) Í pirringnum, opnaðu annan bjór og drekktu hann
7 ) Settu fötu undir vélina
8 ) Leitaðu að 17mm topp
9 ) Gefðstu upp við að leita að toppnum og notaðu fastan lykil
10 ) Losaðu olíutappan og fáðu gusu af sjóðheitri olíu yfir hendur og andlit
11 ) Rúllaðu þér undan bílnum og þurrkaðu af þér mestu olíuna
12 ) Hentu smá sagi á gólfið
13 ) Fáðu þér annan bjór og horfðu á olíuna leka niður
14 ) Eyddu hálftíma í að leita að síutöng
15 ) Gefstu upp við það og lemdu skrúfjárn gegnum síuna og losaðu hana þannig
16 ) Rúllaðu þér undan bílnum með lekandi síuna og hentu henni í
ruslið, feldu hana vel svo umhverfisráðuneyti fari ekki að kvarta, fáðu
þér annan bjór
17 ) Vinur þinn kemur í heimsókn, ákveddu að sýna honum hvernig
fjarstýrði bílskúrsopnarinn virkar, ákveddu að slútta olíuskiptunum til
morguns og kláraðu kassann af bjór með vini þínum.
18 )Sunnudagur; slepptu því að fara í kirkjuna því þú, “þarft að skipta
um olíu á bílnum”, helltu olíunni sem var á bílnum í holuna í garðinum.
19 ) Hentu sagi á gólfið eftir sullið við skref .18
20 ) Bjór? Æ nei hann kláraðist í gær
21 ) Labbaðu í ríkið og keyptu bjór
22 ) Settu nýju síuna í og passaðu að muna að setja smá snefil af olíu á þéttihringinn
23 ) Heltu fyrstu 3 lítrunum á vélina
24 ) …Mundu eftir olíutappanum
25 ) …flýttu þér að finna tappann!!
26 ) Rifjaðu upp að olíutappinn fór ásamt gömlu olíunni niður í holuna í garðinum
27 ) Drekktu bjór
28 ) Mokaðu upp olíublautu holuna og eyddu hálfum degi í að finna tappann, þrífðu tappann í tvígengisolíu
29 ) Hentu sagi á gólfið þar sem nýja olían lak
30 ) Drekktu bjór
31 ) Rúllaðu þér undir bílinn og skrúfaðu tappann í, fáðu sag í augun,
þrífðu augun með olíublautri tusku, misstu takið á fasta lyklinum og
kýldu í grindina á bílnum af öllum öflum óvart
32 ) Dúndraðu hausnum uppundir bílinn í framhaldi af skrefi 31.
33 ) Blótaðu mikið
34 ) Hentu helvítis fasta lyklinum burt
35 ) Blótaðu meira því helvítis lykillinn fór í rúðuna á bíl nágrannans
36 ) Drekktu bjór
37 ) Þrífðu hendur og andlit og þrífðu blóð og svita
38 ) Drekktu bjór
39 ) Drekktu bjór
40 ) Helltu restinni af olíunni á vélina
41 ) Drekktu bjór
42 ) Láttu bílinn síga
43 ) Óvart sígur bíllinn á olíubrúsann og sprengir hann
44 ) Færðu bílinn og hentu sagi á gólfið eftir allan lekann í skrefum 23 - 43.
45 ) Drekktu bjór
46 ) Prufukeyrðu bílinn
47 ) Vertu stoppaður, fyrir að keyra undir áhrifum
48 ) Bíllinn er innheimtur
49 ) Hringdu í elskulegu konuna og fáðu lausnargjald
50 ) 12 klukkustundum síðar, losaðu bílinn úr innheimtu
Kostnaður: Varahlutir:5000 kr nauðsynjavörur 2500
Afgreiðslugjald innheimtu á bílnum 8000 kr Lausnargjald 6000 kr bjór
7500kr Samtals- 29000 kr
EN
Nú ertu handviss um að allt hafi verið rétt gert!!!
»
15.10.2009 00:13:42 / fannsig
Þar sem efnahagsmál í öllum heiminum og reyndar aðallega á íslandi er
mikið í umræðunni þessa dagana þá langaði mér að setja inn stuttar
lýsingar fyrir byrjendur um hvernig fyrirtæki virka í mismunandi
hagkerfum.
SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra
þeirra.
KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér
mjólk.
FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér
mjólk.
NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig
svo.
SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra
þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN
KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar
kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan
stein
SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í
harmonikkunám.
BANDARÍSK FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra
þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo
sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÍSLENSK
FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði
með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í
skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir
vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki
í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að
öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að
einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum
stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í
hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í
verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár
kýr.
DANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Íslendingar kaupa báðar
kýrnar.
JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig
að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú
markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um
allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig
að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig
sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær
eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú
átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær
aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að
því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra
vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra
tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT
FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir
atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem
sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT
FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI
Þú
átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki.
ÁSTRALSKT
FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni
og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT
FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti
löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir
öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og
ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki
núna...
»
...