Já ég var víst búin að lofa henni Önnu að blogga í gær
hehe (
það er að segja á mánudaginn, en þar sem hún er bara nokkrar mín
yfir 12, þá vona ég að það sleppi)
Þessar helgar sem ég hef haft í frí hafa allar verið mjög
skemmtilegar og oftast nær lítill tími í að blogga, það sem ég er
meðal annars búina að gera síðan síðast er að fara í
þórsmerkurdjamm, eyjadjamm, Akureyrarball, krakka afmæli og til að
toppa allt er ég búin að láta lita á mér hárið eins gullt og páska
ungarnir sjálfir eru
Steinunn og smá flipp í mér eiga heiðurinn
af því
Svo núna er bara verið að telja niður í þjóðhátið, það er búið
að kaupa miða og prenta á peysur fyrir hóp sem hefur svolítið
hangið saman vegna sameiginlegs áhugamáls og annara tengsla
Þið
vitið hver þið eruð ef þið lesið þetta

btw 15
dagar!!!! (ég á pantað með herjólfi á miðvikudag!!) 
var að koma heim úr Bíó
Ég og Sigurbjörg frænka skelltum okkur
á Evan Almigth eða hvernig sem það er skrifað. Snilldar mynd þarna
á ferðinni, ég var að kafna úr hlátri mest allan tíman
p.s Til hamingju Gunnar og Laufey!!!!
Þanngað til næst 1o1 Fanney